7. mars 1907
Kataksinax, sem eignaðist dreng að kvöldi 28. febrúar var komin á fætur í gær. Það virtist valda henni áhyggjum að liggja svona lengi í rúminu, en Stein skipaði svo fyrir. Hún virtist aldrei vera veik, að undanskildu miklu máttleysi hálftíma eftir fæðinguna, vegna blóðmissis og áreynslu við að þvo barnið. Dreinginum stóð við fæðinguna. Stein segist hafa sjéð þetta áður á öllum (2) drengbörnum fæddum hér (þaug voru hálf-hvít) [skrifað á íslensku].
Hjónabandsvenjur: Sá siður virðist ríkja að maður sem giftist yngstu dóttur eða einkadóttur verður að tengjast fjölskyldu foreldra hennar. Ef hann reynist síðar meir ófús að fara þangað sem þau fara, fer stúlkan engu að síður með foreldrum sínum (sbr. Titjak og Pannigok, hún á að fara með foreldrum sínum til Kittegaryuit, en hann vill ekki slást í för með þeim, svo hann er þegar farinn upp með ánni til Pokerks).